27. febrúar 2020

Útboð á grænum skuldabréfum OR 3. mars nk.

Þriðjudaginn 3. mars 2020 verða boðin til sölu í lokuðu útboði skuldabréf í grænum skuldabréfaflokkum Orkuveitu Reykjavíkur, OR020934 GB og OR180255 GB.

  • OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2.september 2034.
  • OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055.

Áður hafa verið gefin út bréf í flokkunum að nafnvirði 3.200 m.kr. í OR020934 GB og að nafnvirði 12.371 m.kr. í OR0180255 GB

Útgáfa skuldabréfaflokkanna er í samræmi við áður samþykkta lántökuheimild Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2020 sem nemur allt að 13,1 ma.kr.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á Sustainable bond markaði Nasdaq á Íslandi.

Nánari upplýsingar:

Ingvar Stefánsson
framkvæmdastjóri Fjármála OR
Sími: 516-6100
Netfang: ingvar.stefansson@or.is

Matei Manolescu
Skuldabréfamiðlun Fossa markaða
Sími: 522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is