10. ágúst 2020

Útboð á félagslegum skuldabréfum Félagsbústaða 12. ágúst nk.

Miðvikudaginn 12. ágúst 2020 verða boðin til sölu, í lokuðu útboði, félagsleg skuldabréf í skuldabréfaflokki Félagsbústaða, FB100366 SB.

Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður með jöfnum greiðslum á 3 mánaða fresti og lokagjalddaga 10. mars 2066 og ber einfalda ábyrgð Reykjavíkurborgar.

Áður hafa verið gefin út bréf í flokknum að nafnvirði 9.900 m.kr.

Félagsleg skuldabréf (e. Social Bonds) eru skuldabréf sem gefin eru út til að fjármagna sérstök verkefni sem hafa jákvæð samfélagsleg áhrif. Einn helsti hvatinn að útgáfu slíkra skuldabréfa er vaxandi krafa fjárfesta um samfélagslega ábyrga fjárfestingakosti.

Félagsbústaðir hafa sett sér félagslegan skuldabréfaramma um þessa útgáfu (e. Reykjavik Social Housing Social Bond Framework) sem fylgir alþjóðlegum viðmiðum um félagsleg skuldabréf (e. Social Bond Principles) gefnum út af ICMA, Alþjóðasamtökum aðila á verðbréfamarkaði. Ramminn hefur hlotið óháða vottun (e. second opinion) frá Sustainalytics sem er leiðandi aðili í slíkri vottunum á heimsvísu. Félagslega rammann ásamt vottun Sustainalytics má nálgast á vefsíðu Félagsbústaða á slóðinni: https://www.felagsbustadir.is/um-starfsemina/fjarhagur/.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar:

Sigrún Árnadóttir
Framkvæmdastjóri Félagsbústaða
Sími: 520-1500
Netfang: sigrun@felagsbustadir.is

Daði Kristjánsson
Fossar markaðir hf.
Sími: 840-4145
Netfang: dadi.kristjansson@fossar.is