4. desember 2018

Stækkun á skuldabréfaflokknum LYKILL 17 1

Fossar markaðir höfðu umsjón með stækkun á skuldabréfaflokknum LYKILL 17 1 fyrir Lykil fjármögnun hf. þann 29. nóvember síðastliðinn.

Skuldabréfin bera 3,95% fasta ársvexti og voru seld á ávöxtunarkröfunni 3,45%.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.380.000.000 króna og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar að nafnverði 15.000.000.000 króna sem er jafnframt hámarksstærð flokksins.

LYKILL 17 1 er skuldabréfaflokkur sem tryggður er með veði í útlánum og fjármögnunarsamningum Lykils fjármögnunar.