17. nóvember 2020

Reitir gefa út nýjan skuldabréfaflokk

Reitir fasteignafélag hf. hefur lokið sölu á skuldabréfum í nýjum skuldabréfaflokki, REITIR150532. Flokkurinn er verðtryggður og tryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn ber 2,30% fasta ársvexti og er með lokagjalddaga 15. maí 2032 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 7.000.000.000 króna á ávöxtunarkröfunni 2,34%.

Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna mánudaginn 30. nóvember og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.

Grunnlýsing félagsins, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks verða birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Fossar markaðir hafa umsjón með sölu skuldabréfanna.

Nánari upplýsingar:

Einar Þorsteinsson
Fjármálastjóri Reita
Sími: 669-4416
Netfang: einar@reitir.is

Matei Manolescu
Fossar markaðir
Sími: 522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is