14. október 2019

Orkuveita Reykjavíkur: Stækkun á OR180255 GB

Orkuveita Reykjavíkur lauk þann 11. október 2019, stækkun á skuldabréfaflokknum OR180255 GB. Gefin voru út skuldabréf að nafnverði kr. 2.733 milljónir og seld á ávöxtunarkröfunni 1,80%.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á Sustainable Bond markaði Nasdaq á Íslandi.

Nánari upplýsingar veita:
Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími 516-6100, netfang: ingvar.stefansson@or.is.
Matei Manolescu, Fossar markaðir, sími 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is.