24. apríl 2020

Orkuveita Reykjavíkur: Stækkun á OR180255 GB

Orkuveita Reykjavíkur lauk stækkun á skuldabréfaflokknum OR180255 GB, þann 22. apríl sl. Gefin voru út skuldabréf að nafnverði kr. 2.000 milljónir og seld á ávöxtunarkröfunni 1,50%.

Fossar markaðir höfðu umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi fyrir sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar veita:

Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími 516-6100, netfang: ingvar.stefansson@or.is.

Matei Manolescu, Fossar markaðir, sími 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is.