1. október 2020

Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa OR

Lokuðu útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í gær, 30. september 2020. Gefin voru út skuldabréf í flokkunum OR020934 GB og OR180255 GB en skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf með lokagjalddaga 2. september 2034 og 18. febrúar 2055.

Í heildina bárust tilboð upp á 4.730 m.kr. að nafnvirði í flokkana.

Heildartilboð í OR020934 GB  voru samtals 2.430 m. kr. á bilinu 0,60% – 0,71%. Tilboðum að fjárhæð 1.850 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 0,63%. Heildartilboð í OR180255 GB voru samtals 2.300  m. kr. á bilinu 0,99% – 1,04%. Tilboðum að fjárhæð 1.850 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,02%.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar:
Ingvar Stefánsson
Framkvæmdastjóri fjármála OR
Sími: 516-6100
Netfang: ingvar.stefansson@or.is

Matei Manolescu
Markaðsviðskipti, Fossar markaðir
Sími: 522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is