24. september 2018

Nasdaq býður Fossa markaði velkomna

Nasdaq býður Fossa markaði velkomna sem nýjan aðila að kauphöllum Nasdaq í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Með aðildinni eru Fossar fyrsta íslenska fjármálafyrirtækið í meira en áratug til að tengjast erlendum kauphöllum beint með þessum hætti.

Fossar markaðir geta nú átt bein og milliliðalaus viðskipti með öll verðbréf sem skráð eru í Nasdaq Copenhagen og Nasdaq Stockholm kauphallirnar.

Markaðsviðskipti hafa frá stofnun Fossa markaða árið 2015 verið kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Síðan hafa fyrirtækjaráðgjöf og sértæk þjónusta við fagfjárfesta bæst við starfsemina samhliða uppbyggingu á þjónustu fyrir viðskiptavini á mörkuðum víðs vegar um heiminn. Fossar eru með aðgang og samstarfssamninga við erlendar sjóðastýringar og greiningarfyrirtæki, auk aðgangs að fjárfestingakostum út um allan heim hvort sem það er beinn markaðsaðgangur að kauphöllum eða aðgangur að sjóðastýringum.