25. júní 2021

Hreggviður Ingason ráðinn til Fossa markaða

Hreggviður Ingason hefur verið ráðinn til starfa sem forstöðumaður safnastýringar hjá eignastýringu Fossa markaða.

Hreggviður býr yfir áralangri reynslu af fjármálum og bankastarfsemi. Hann kemur til Fossa markaða frá Lífsverki lífeyrissjóði þar sem hann starfaði sem forstöðumaður eignastýringar frá árinu 2016. Þar áður hafði Hreggviður umsjón með uppgjöri afleiðusafns Glitnis frá 2010 til 2016 og var forstöðumaður fjárstýringar VBS fjárfestingarbanka á árunum 2007 til 2010. Samhliða störfum hefur hann meðal annars sinnt stundakennslu við Háskólann í Reykjavík og setið sem sérfróður meðdómsmaður í fjölda mála sem hafa krafist sérfræðiþekkingar á sviði fjármála.

Hreggviður er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Hann lauk meistaragráðu í hagfræði frá Boston University árið 2005 og útskrifaðist einnig með meistaragráðu í fjármálastærðfræði frá University of Warwick í Bretlandi árið 2006. Auk þess hefur Hreggviður lokið námi í verðbréfaviðskiptum.

„Ég hlakka mjög til að taka þátt í uppbyggingu og spennandi verkefnum með fjölbreyttum hópi sérfræðinga innan nýs sviðs eignastýringar Fossa markaða,“ segir Hreggviður sem hefur störf hjá félaginu 1. september.

Nýlega bættist eignastýring við þjónustu Fossa markaða á fjármálamarkaði og býður félagið nú viðskiptavinum sínum upp á einkabankaþjónustu og stýringu eignasafna. Eignastýringarstarfsemi Fossa markaða verður til húsa í Næpunni, á Skálholtsstíg 7, steinsnar frá höfuðstöðvum Fossa við Fríkirkjuveg og mun starfsemin flytjast þangað í lok sumars.