1. október 2021

Fossar stærstir í tilkynntum viðskiptum með skuldabréf í sept

Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum í skuldabréfum í september.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í september var 25,3% í skuldabréfum og 16,3% í hlutabréfum og samsvarandi 19,9% og 13,2% í öllum viðskiptum.

Það sem af er ári eru Fossar markaðir umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með bæði skuldabréf og hlutabréf með 23,3% hlutdeild í skuldabréfum og 28,5% hlutdeild í hlutabréfum.

Heildarvelta í september nam 230 milljörðum króna í skuldabréfum og 220 milljörðum króna í hlutabréfum. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 62,1% af heild í skuldabréfum og 73,8% í hlutabréfum.