1. desember 2021

Fossar stærstir í tilkynntum viðskiptum með skuldabréf í nóv

Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum í skuldabréfum í nóvember.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í nóvember var 19,2% í skuldabréfum og 16,1% í hlutabréfum og samsvarandi 16,1% og 13,9% í öllum viðskiptum.

Það sem af er ári eru Fossar markaðir umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með bæði skuldabréf og hlutabréf með 22,0% hlutdeild í skuldabréfum og 26,0% hlutdeild í hlutabréfum.

Heildarvelta í nóvember nam 255 milljörðum króna í skuldabréfum og 204 milljörðum króna í hlutabréfum. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 62,5% af heild í skuldabréfum og 73,9% í hlutabréfum.