1. júní 2021

Fossar stærstir í tilkynntum viðskiptum með skuldabréf í maí

Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum í skuldabréfum í maí.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í maí var 23,7% í skuldabréfum og 22,8% í hlutabréfum og samsvarandi 15,2% og 19,2% í öllum viðskiptum.

Það sem af er ári eru Fossar markaðir umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með bæði skuldabréf og hlutabréf með 22,9% hlutdeild í skuldabréfum og 35,4% hlutdeild í hlutabréfum.

Heildarvelta í maí nam 221 milljörðum króna í skuldabréfum og 138 milljörðum króna í hlutabréfum. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 61,3% af heild í skuldabréfum og 75,8% í hlutabréfum.