2. desember 2020

Fossar stærstir í tilkynntum viðskiptum með hlutabréf í nóvember

Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum í hlutabréfum í nóvember.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í nóvember var 15,3% í skuldabréfum og 23,9% í hlutabréfum og samsvarandi 10,9% og 19,0% í öllum viðskiptum.

Það sem af er ári eru Fossar markaðir umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með bæði skuldabréf og hlutabréf með 21,9% hlutdeild í skuldabréfum og 21,6% hlutdeild í hlutabréfum.

Heildarvelta í nóvember nam 333 milljörðum króna í skuldabréfum og 125 milljörðum króna í hlutabréfum. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 48,7% af heild í skuldabréfum og 65,8% í hlutabréfum.