4. ágúst 2020

Fossar stærstir í tilkynntum viðskiptum með hlutabréf í júlí

Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum í hlutabréfum í júlí.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í júlí var 18,7% í skuldabréfum og 29,8% í hlutabréfum og samsvarandi 14,4% og 20,4% í öllum viðskiptum.

Það sem af er ári eru Fossar markaðir umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með bæði skuldabréf og hlutabréf með 21,4% hlutdeild í skuldabréfum og 19,7% hlutdeild í hlutabréfum.

Heildarvelta í júlí nam 124 milljörðum króna í skuldabréfum og 46 milljörðum króna í hlutabréfum. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 47,7% af heild í skuldabréfum og 64,9% í hlutabréfum.