2. október 2020

Fossar stærstir í tilkynntum viðskiptum í september

Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum í bæði hlutabréfum og skuldabréfum í september.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í september var 20,8% í skuldabréfum og 26,8% í hlutabréfum og samsvarandi 14,0% og 19,6% í öllum viðskiptum.

Það sem af er ári eru Fossar markaðir umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með bæði skuldabréf og hlutabréf með 21,5% hlutdeild í skuldabréfum og 20,9% hlutdeild í hlutabréfum.

Heildarvelta í september nam 223 milljörðum króna í skuldabréfum og 79 milljörðum króna í hlutabréfum. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 48,4% af heild í skuldabréfum og 64,7% í hlutabréfum.