2. júní 2020

Fossar stærstir í tilkynntum viðskiptum í maí

Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum í bæði hlutabréfum og skuldabréfum í maí.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í maí var 23,7% í skuldabréfum og 25,7% í hlutabréfum og samsvarandi 16,4% og 20,2% í öllum viðskiptum.

Það sem af er ári eru Fossar markaðir umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með skuldabréf og hlutabréf með 22,1% hlutdeild í skuldabréfum og 19,4% hlutdeild í hlutabréfum.

Heildarvelta í maí nam 334 milljörðum króna í skuldabréfum og 66 milljörðum króna í hlutabréfum. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 45,8% af heild í skuldabréfum og 65,3% í hlutabréfum.