2. júlí 2020

Fossar stærstir í tilkynntum viðskiptum á fyrri hluta ársins

Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum með skuldabréf og hlutabréf fyrri hluta ársins.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í júní var 18,9% í skuldabréfum og 16,8% í hlutabréfum og samsvarandi 13,3% og 13,7% í öllum viðskiptum.

Á fyrri árshelmingi 2020 voru Fossar markaðir umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með bæði skuldabréf og hlutabréf, með 21,6% og 19,1% hlutdeild.

Heildarvelta í júní nam 234 milljörðum króna í skuldabréfum og 87 milljörðum króna í hlutabréfum.