3. janúar 2022

Fossar stærstir í tilkynntum viðskiptum á árinu 2021

Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum á árinu 2021.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í desember var 11,4% í skuldabréfum og 19,4% í hlutabréfum og samsvarandi 9,2% og 15,9% í öllum viðskiptum.

Á árinu 2021 eru Fossar markaðir umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með bæði skuldabréf og hlutabréf með 21,1% hlutdeild í skuldabréfum og 25,5% hlutdeild í hlutabréfum.

Heildarvelta á árinu nam 2.329 milljörðum króna í skuldabréfum og 2.120 milljörðum króna í hlutabréfum. Á árinu nam velta í tilkynntum viðskiptum 63,5% af heild í skuldabréfum og 73,8% í hlutabréfum.