4. janúar 2021

Fossar stærstir í tilkynntum viðskiptum á árinu 2020

Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum á árinu 2020.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í desember var 18,7% í skuldabréfum og 25,0% í hlutabréfum og samsvarandi 14,8% og 19,3% í öllum viðskiptum.

Á árinu 2020 eru Fossar markaðir umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með bæði skuldabréf og hlutabréf með 21,6% hlutdeild í skuldabréfum og 22,1% hlutdeild í hlutabréfum.

Heildarvelta á árinu nam 3.536 milljörðum króna í skuldabréfum og 1.201 milljörðum króna í hlutabréfum. Á árinu nam velta í tilkynntum viðskiptum 49,5% af heild í skuldabréfum og 66,4% í hlutabréfum.