1. mars 2021

Fossar stærstir í febrúar

Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum í bæði hlutabréfum og skuldabréfum í febrúar.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í febrúar var 21,7% í skuldabréfum og 34,5% í hlutabréfum og samsvarandi 15,7% og 27,3% í öllum viðskiptum.

Það sem af er ári eru Fossar markaðir umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með bæði skuldabréf og hlutabréf með 22,6% hlutdeild í skuldabréfum og 35,7% hlutdeild í hlutabréfum.

Heildarvelta í febrúar nam 240 milljörðum króna í skuldabréfum og 178 milljörðum króna í hlutabréfum. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 58,0% af heild í skuldabréfum og 76,6% í hlutabréfum.