1. júlí 2021

Fossar stærstir á fyrri helming ársins 2021

Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum í bæði hlutabréfum og skuldabréfum í júní.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í júní var 19,8% í skuldabréfum og 24,8% í hlutabréfum og samsvarandi 17,2% og 20,8% í öllum viðskiptum.

Það sem af er ári eru Fossar markaðir umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með bæði skuldabréf og hlutabréf með 22,6% hlutdeild í skuldabréfum og 33,5% hlutdeild í hlutabréfum.

Heildarvelta í júní nam 106 milljörðum króna í skuldabréfum og 188 milljörðum króna í hlutabréfum. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 62,0% af heild í skuldabréfum og 75,2% í hlutabréfum.