21. febrúar 2022

Fossar sjá um útboð á grænum skuldabréfum OR 24. febrúar nk.

Fimmtudaginn 24. febrúar 2022 verða boðin til sölu í lokuðu útboði skuldabréf í grænum skuldabréfaflokki Orkuveitu Reykjavíkur, OR180242 GB.

OR180242 GB er óverðtryggður flokkur með föstum vöxtum og jöfnum afborgunum tvisvar á ári fram að lokagjalddaga þann 18. febrúar 2042. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 4.198 milljónir í flokkinum.

Útgáfa skuldabréfaflokksins er í samræmi við áður samþykkta lántökuheimild Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2022.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar:

Bjarni Freyr Bjarnason
Framkvæmdastjóri Fjármála OR
Sími: 516-6100
Netfang: bjarni.freyr.bjarnason@or.is

Matei Manolescu
Fossar markaðir
Sími: 522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is