28. ágúst 2018

Fossar markaðir ljúka stærsta lokaða skuldabréfaútboði ársins

Skuldabréfamiðlun Fossa markaða lauk þann 27. ágúst sl. stækkun á skuldabréfaflokknum EIK 161047. Seld voru skuldabréf að nafnvirði 4.220 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 3,6% og verður heildarstærð flokksins því 20.000 milljónir sem er jafnframt hámarksstærð flokksins miðað við núverandi útgáfulýsingu.