9. desember 2021

Fossar markaðir ljúka skuldabréfaútboði fyrir Reiti

Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 8. desember 2021 lauk í gær. Boðin voru til sölu skuldabréf í verðtryggða flokknum REITIR150537.

Alls bárust tilboð að nafnvirði 6.460 m.kr. og var ákveðið að taka tilboðum að nafnvirði 4.690 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,85%.

Fossar markaðir höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna.

Gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er fyrirhuguð miðvikudaginn 15. desember næstkomandi og óskað verður eftir því að hin nýju skuldabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið.

Grunnlýsing félagsins, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfa verða birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Nánari upplýsingar:

Einar Þorsteinsson
Fjármálastjóri Reita
Sími: 699-4416
Netfang: einar@reitir.is

Matei Manolescu
Fossar markaðir
Sími: 522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is