5. mars 2021

Fossar markaðir ljúka skuldabréfaútboði fyrir Reginn

Reginn hf. (Nasdaq: REGINN) lauk í gær, fimmtudaginn 4. mars, útboði á skuldabréfum í flokkunum REGINN23 GB og REGINN280130. Alls bárust tilboð að fjárhæð 9.670 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í REGINN23 GB voru samtals 2.220 m.kr. Ákveðið var að taka tilboðum að fjárhæð 900 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,88% og verður heildarstærð flokksins í kjölfar stækkunar því að nafnverði 2.900 m.kr. Flokkurinn er óverðtryggður og tryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins.

Heildartilboð í REGINN280130 voru samtals 7.450 m.kr. Ákveðið var að taka tilboðum að fjárhæð 1.600 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,83% og verður heildarstærð flokksins í kjölfar stækkunar því að nafnverði 8.020 m.kr. Flokkurinn er verðtryggður og tryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins.

Uppgjör viðskiptanna er fyrirhugað þann 11. mars næstkomandi. Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna ásamt töku þeirra til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar:

Helgi S. Gunnarsson
Forstjóri
Sími: 512-8900 / 899-6262
Netfang: helgi@reginn.is

Matei Manolescu
Fossar markaðir
Sími: 522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is