22. september 2021

Fossar markaðir ljúka skuldabréfaútboði fyrir Reginn

Reginn hf. (Nasdaq: REGINN) hefur lokið útboði á skuldabréfum í skuldabréfaflokkinum REGINN280130. Alls bárust tilboð að fjárhæð 3.720 m.kr. að nafnverði.

Ákveðið var að taka tilboðum að fjárhæð 3.120 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 1,34% og verður heildarstærð flokksins í kjölfar stækkunar því að nafnverði 11.140 m.kr. Flokkurinn er verðtryggður og tryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins.

Uppgjör viðskiptanna er fyrirhugað þann 28. september næstkomandi.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna ásamt töku þeirra til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar:

Helgi S. Gunnarsson
Forstjóri
Sími: 512-8900 / 899-6262
Netfang: helgi@reginn.is

Matei Manolescu
Fossar markaðir
Sími: 522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is