8. júní 2021

Fossar markaðir ljúka skuldabréfaútboði fyrir OR

Orkuveita Reykjavíkur lauk í gær, 7. júní 2021, stækkun á græna skuldabréfaflokknum OR180242 GB. Gefin voru út skuldabréf að nafnvirði 2.000 m.kr. og seld á ávöxtunarkröfunni 4,60%. Stærð flokksins eftir stækkun verður 4.198 milljónir að nafnvirði.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar:

Ingvar Stefánsson
Framkvæmdastjóri Fjármála OR
Sími: 516-6100
Netfang: ingvar.stefansson@or.is

Matei Manolescu
Fossar markaðir
Sími: 522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is